FH hafði betur í toppslagnum

FH jafnaði KR á stigum í toppbaráttunni.
FH jafnaði KR á stigum í toppbaráttunni. mbl.is/Árni Sæberg

FH jafnaði KR á stigum í 1. deild kvenna í fótbolta með 2:0-útisigri er liðin mættust í Frostaskjóli í kvöld.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom FH yfir á 26. mínútu og Sandra Nabweteme, lánskona frá Þór/KA, tryggði FH 2:0-sigur með marki á 59. mínútu.

Liðin eru nú bæði með 29 stig í tveimur efstu sætum deildarinnar en FH er fyrir ofan á markatölu.

Í Grindavík unnu heimakonur 1:0-sigur á Augnabliki í lykilleik í botnbaráttunni. Júlía Ruth Thasaphong skoraði sigurmarkið á 68. mínútu.

Grindavík er í sjötta sæti með 14 stig en Augnablik í botnsætinu með aðeins átta stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert