Sænskur varnarmaður í KR

Rúnar Kristinsson er þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson er þjálfari KR. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Sænski knattspyrnumaðurinn Pontus Lindgren er á leið til KR frá Sylvia úr þriðju efstu deild Svíþjóðar. Hann var um tíma í sænska U16 ára landsliðinu. 

Fótbolti.net greinir frá. Lindgren, sem er 21 árs gamall varnarmaður, er uppalinn hjá Norrköping en gekk í raðir Sylvia, sem hefur sterk tengsl við Norrköping, árið 2019. 

KR hefur leik í Bestu deildinni miðvikudaginn 20. apríl á útivelli gegn nýliðum Fram.

Uppfært kl. 17.54:
KR hefur staðfest komu Pontus Lindgrens til félagsins og hann hefur skrifað undir tveggja ára samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert