Knattspyrnumaðurinn Kundai Benyu, miðjumaður Vestra er eftirsóttur af liðum í Bestu deild karla.
Það er fotbolti.net sem greinir frá en þar kemur fram að ÍA og ÍBV hafi áhuga á leikmanninum sem lék með landsliði Simbabve á Afríkumótinu í janúar.
Benyu lék vel með Vestra í Lengjudeildinni á síðasta tímabili og er enn samningsbundinn félaginu. Hann ætlar sér þó sjálfur að spila annars staðar í sumar og var ekki í leikmannahópi liðsins í 5:0-tapi gegn Gróttu í fyrstu umferð.
Benyu er 24 ára gamall og lék undir stjórn núverandi þjálfara ÍA, hjá Vestra síðasta sumar.