Fjórir nýliðar í landsliðshópi Íslands

Sævar Atli Magnússon í leik liðsins gegn Grikklandi.
Sævar Atli Magnússon í leik liðsins gegn Grikklandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 árs liðs karla í fótbolta, hefur valið 22 leikmenn fyrir leiki gegn Liechtenstein, Hvíta-Rússland og Kýpur í undankeppni Evrópumótsins 2023.

Fjórir leikmenn hópsins hafa ekki leikið með liðinu áður en það eru þeir Adam Ingi Benediktsson markvörður hjá Gautaborg í Svíþjóð, Ísak Snær Þorvaldsson hjá Breiðabliki, Óli Valur Ómarsson hjá Stjörnunni og Þorleifur Úlfarsson hjá Houston Dynamo í Bandaríkjunum.

Allir leikirnir verða spilaðir á Víkingsvelli í næsta mánuði. Ísland er í þriðja sæti riðils fjögur með níu stig og á litla möguleika á að fara á lokamótið.

Leikirnir:
Ísland – Liechtenstein föstudaginn 3. júní kl. 17
Ísland – Hvíta-Rússland miðvikudaginn 8. júní kl. 18
Ísland – Kýpur laugardaginn 11. júní kl. 19:45.

Íslenski hópurinn:
Adam Ingi Benediktsson - IFK Göteborg
Ágúst Eðvald Hlynsson - Valur - 9 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - FC Köbenhavn - 5 leikir
Atli Barkarson - SonderjyskE - 5 leikir
Birkir Heimisson - Valur - 3 leikir
Bjarki Steinn Bjarkason - Catanzaro - 10 leikir
Brynjólfur Andersen Willumsson - Kristiansund BK - 20 leikir, 3 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - Breiðablik - 3 leikir
Finnur Tómas Pálmason - KR - 9 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Elfsborg - 3 leikir
Ísak Óli Ólafsson - Esbjerg fB - 13 leikir, 2 mörk
Ísak Snær Þorvaldsson - Breiðablik
Kolbeinn Þórðarson - Lommel - 14 leikir, 1 mark
Kristall Máni Ingason - Víkingur R. - 6 leikir
Kristian Nökkvi Hlynsson - Ajax - 6 leikir, 2 mörk
Logi Hrafn Róbertsson - FH - 2 leikir
Óli Valur Ómarsson - Stjarnan
Orri Steinn Óskarsson - FC Köbenhavn - 2 leikir
Róbert Orri Þorkelsson - CF Montréal - 6 leikir
Sævar Atli Magnússon - Lyngby - 7 leikir
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R. - 7 leikir
Þorleifur Úlfarsson - Houston Dynamo

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert