Knattspyrnumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson er á leiðinni til Vals í þriðja sinn á ferlinum og verður kynntur hjá félaginu á næstu dögum.
Þetta herma heimildir 433.is. Kristinn gengur í raðir Vals frá FH, þar sem hann var í eitt tímabil.
Heimir Guðjónsson, núverandi þjálfari FH, var þjálfari Vals þegar Kristinn skipti yfir til FH. Er þetta því í annað sinn á skömmum tíma sem Kristinn yfirgefur félag sem Heimir þjálfar.
Kristinn kom fyrst til Vals árið 2012 og svo aftur árið 2018, eftir tvö ár í atvinnumennsku. Verður hann því leikmaður Hlíðarendafélagsins í þriðja sinn.
Miðjumaðurinn hefur leikið 2018 leiki í efstu deild og skorað í þeim 42 mörk. Hann skoraði þrjú mörk í 24 leikjum með FH á síðustu leiktíð.