HK jafnaði í uppbótartíma

Birkir Valur Jónsson og félagar í HK gerðu jafntefli við …
Birkir Valur Jónsson og félagar í HK gerðu jafntefli við Vestra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

HK og Vestri skildu jöfn, 1:1, þegar liðin áttust við í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Kórnum í gærkvöldi.

Markalaust var í leikhléi en Vestri náði forystunni á 57. mínútu þegar HK-ingar urðu fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Vestri virtist vera að sigla sínum fyrsta sigri í riðlinum í höfn þegar HK fékk dæmda vítaspyrnu í uppbótartíma.

Úr henni skoraði Belginn Marciano Aziz, á þriðju mínútu uppbótartímans, og tryggði HK þannig stig.

Valur vann riðilinn með 13 stigum og fer í undanúrslit, KR fékk 12 stig en HK hafnaði í þriðja sæti með sjö stig og ÍA varð í fjórða sæti með sex stig.

Vestri og Grindavík eru með eitt stig hvort og mætast í lokaleik riðilsins á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert