Dagný komin fram úr Hólmfríði

Dagný Brynjarsdóttir er orðin næstmarkahæst frá upphafi.
Dagný Brynjarsdóttir er orðin næstmarkahæst frá upphafi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagný Brynjarsdóttir er orðin næstmarkahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu frá upphafi.

Dagný kom Íslandi yfir gegn Nýja-Sjálandi, 1:0, í vináttulandsleik þjóðanna sem nú stendur yfir í Tyrklandi og er í beinni textalýsingu hér á mbl.is, á 28. mínútu leiksins með skalla eftir langt innkast Sveindísar Jane Jónsdóttur.

Þar með hefur Dagný skorað 38 mörk í 112 landsleikjum fyrir Íslands hönd. Hún fór fram úr Hólmfríði Magnúsdóttur, sveitunga sínum úr Rangárvallasýslunni, en hún skoraði 37 mörk í 113 landsleikjum á árunum 2003 til 2020.

Margrét Lára Viðarsdóttir á markametið sem verður seint eða  aldrei slegið en hún skoraði 79 mörk í 124 landsleikjum á árunum 2003 til 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert