Íslenska þjóðin fylgdist að sjálfsögðu grannt með karlalandsliðinu í handknattleik og lét vel í sér heyra á samfélagsmiðlum eftir að ljóst var að Ísland væri úr leik á EM í Króatíu.
Eftir að Svíar unnu öruggan sigur á Króötum í kvöld er ljóst að Ísland er úr leik, en sigur Króatíu hefði tryggt Íslandi sæti í milliriðli mótsins.
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter.
Katastrofa í Króatíu. Ballið búið hjá okkar mönnum. Því miður. Föllum úr leik eftir riðlakeppnina annað EM-mótið í röð. Kveðjumót nokkurra leikmanna og framtíð Geirs í óvissu.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) January 16, 2018
Svíar stóðust sitt próf undir pressu með miklum stæl. Við skítféllum. Hrikaleg vonbrigði. Nú þarf að skoða hlutina vel og vandlega því við sýndum á köflum að það er hellings geta í þessu liði. #emruv #handbolti
— Gaui Árna (@gauiarna) January 16, 2018
Djöfulsins Svíagrýlan að fara illa með okkur! #emruv
— Gunni Gregersen (@GunniGud) January 16, 2018
Kannski bara fínt að við förum ekki í milliriðla.. Virðumst ekki eiga erindi þangað miðað við spilamennskuna á mótinu!.. #emruv #handbolti
— Þorsteinn Haukur (@thorsteinnhauku) January 16, 2018
Jæja þetta spilaðist alveg eins og á EM 2016 alveg eins og mig grunaði því miður og verr. Hvað mun HSI gera í þjálfaramálum nú? #handbolti #emruv
— Óskar Guðmundsson (@OskarGumundsson) January 16, 2018
Ísland er England handboltastórmóta. Förum inn ekki vitandi við hverju við eigum að búast, spilum vel og aukum væntingarnar þangað til allt hrynur með ömurlegri frammistöðu.... áfram Ísland... #emruv #handbolti
— Pétur Sæmundsen (@PeturSaem) January 16, 2018
Ekki meir Geir?? #emruv
— Berglind Þorbergs (@berglind80) January 16, 2018
Díses fokk hvað króatar eru ÓÞOLANDI í íþróttum! Eru þeir bara að reyna að vera leiðinlegir?? #emruv #handbolti #fokk
— Andri P. Guðmundsson (@partyandri) January 16, 2018
Svíagrýlan er alive & kicking #hmRúv
— Teitur Örlygsson (@teitur11) January 16, 2018
Þetta er alveg ótrúlega ömurlegt allt. En við lifum og lærum af þessu. Byrjum Olisdeildina um helgina og gleymum þessu bara. #emruv #handkast
— Máni Pétursson (@Manipeturs) January 16, 2018