Mahrez fer hvergi

Riyad Mahrez fagnar með Leicester.
Riyad Mahrez fagnar með Leicester. AFP

Riyad Mahrez mun ekki yfirgefa Leicester City í janúarglugganum að sögn Claude Puel, knattspyrnustjóra félagsins.

Liverpool og Arsenal eru meðal þeirra liða sem hafa sýnt mikinn áhuga að fá Alsíringinn en Puel segir ekki koma til greina að sleppa miðjumanninum nú í janúar.

Mahrez hefur blómstrað með Leicester-liðinu frá því Puel tók við stjórn liðsins og er annar markahæsti leikmaður Leicester í úrvalsdeildinni með 7 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert