Úrvalsdeildarliðin Brighton og Southampton bættust í dag í hóp þeirra liða sem hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Brighton mætti D-deildarliði Coventry og vann öruggan 3:1-sigur. Brighton komst í 3:0 með mörkum Jurgen Locadia, Gonnor Goldson og Leonardo Ulloa áður en Jonson Clarke-Harris lagaði stöðuna fyrir Coventry og þar við sat.
Southampton heimsótti West Brom í úrvalsdeildarslag og vann 2:1-sigur. Wesley Hoedt og Dusan Tadic komu Southampton í 2:0 en Salomon Rondon minnkaði muninn fyrir West Brom sem komst þó ekki lengra.