Birkir Bjarnason og liðsfélagar hans í Aston Villa unnu öruggan 4:0-sigur á Ipswich á útivelli í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Birkir lék allan leikinn og lagði upp fjórða markið á Henri Lansbury átta mínútum fyrir leikslok með góðri fyrirgjöf.
Jón Daði Böðvarsson spilaði fyrstu 78 mínúturnar fyrir Reading sem tapaði fyrir Sheffield Wednesday á útivelli. Reading er í 19. sæti með 43 stig og enn að berjast um að halda sæti sínu í deildinni.
Aston Villa er í 4. sæti deildarinnar með 82 stig og í harðri baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Hörður Björgvin Magnússon var ekki með Bristol City sem gerði ótrúlegt 5:5-jafntefli við Hull á útivelli. Bristol City er í 10. sæti með 66 stig.