Lampard þarf að greiða sekt

Frank Lampard.
Frank Lampard. AFP

Frank Lampard, knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Derby, hefur verið sektaður af enska knattspyrnusambandinu.

Lampard þarf að greiða tvö þúsund pund í sekt, sem jafngildir um 290 þúsund krónum, en fékk að líta rauða spjaldið fyrir mótmæli í leik sinna manna gegn Rotherham um síðustu helgi þar sem Deby mátti sætta sig við 1:0 tap.

Lampard tók við stjórastarfinu hjá Derby í sumar og er þetta frumraun hans í þessu starfi en Lampard lék í fjölda ára með Chelsea og enska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert