Engin vandamál á milli okkar

José Mourinho þurfti að sætta sig við tap gegn Derby …
José Mourinho þurfti að sætta sig við tap gegn Derby í deildabikarnum í kvöld. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, staðfesti í kvöld að Paul Pogba yrði ekki lengur varafyrirliði liðsins. Hann hafnaði hins vegar þeim sögusögnum að samband þeirra væri slæmt. 

„Ég hef tekið þá ákvörðun að Pogba er ekki lengur varafyrirliði. Það eru hins vegar engin vandamál á milli okkar. Það er sama manneskjan sem ákvað að hann yrði varafyrirliði og sú sem er að taka bandið af honum, ég,“ sagði Mourinho eftir tap sinna manna á móti Derby í deildabikarnum.

„Ég er stjórinn og ég tek ákvarðanir. Þetta er ákvörðun sem ég þarf ekki að útskýra,“ sagði Mourinho. Barcelona og Juventus ku hafa mikinn áhuga á að fá Pogba til liðs við sig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert