Mendy fór í hnéaðgerð

Benjamin Mendy.
Benjamin Mendy. AFP

Benjamin Mendy, varnarmaður Englandsmeistaranna í Manchester City, verður ekki með liðinu á næstunni þar sem hann fór í aðgerð í gær. 

Gerð var aðgerð á vinstra hné Mendys en í fyrra fór hann í aðgerð á því hægra og missti mikið úr á síðasta keppnistímabili. 

Hann hefur hins vegar leikið tólf leiki í upphafi þessa tímabils og var í byrjunarliðinu í grannslagnum gegn United á dögunum. 

Ekki hefur verið gefið upp hvenær læknateymi City býst við að Mendy verði leikfær á ný. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert