Svona hlutir gerast hjá Liverpool

Adrián gerði sig sekan um slæm mistök gegn Southampton um …
Adrián gerði sig sekan um slæm mistök gegn Southampton um helgina en það kom ekki að sök. AFP

Adrián, markmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, gerði sig sekan um slæm mistök um helgina þegar Liverpool sótti Southampton heim í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 2:1-sigri Liverpool en á 82. mínútu ætlaði Adrián að spyrna frá marki.

Það gekk ekki betur en svo að markspyrna hans fór af Danny Ings og í netið en það kom ekki að sök og Liverpool fagnaði dýrmætum sigri í leikslok. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var lítið að stressa sig á hlutunum í leikslok enda fór Liverpool heim með þrjú stig í farteskinu.

„Ég bauð hann bara velkominn til Liverpool,“ sagði Klopp í samtali við blaðamenn þegar hann var spurður út í það hvað hann hefði sagt við markmanninn í leikslok. „Alisson gerði nákvæmlega sömu mistök þegar hann var nýkominn til félagsins.“

„Þetta tengist því eitthvað að vera markmaður hjá Liverpool held ég og svona hlutir gerast hjá félaginu. Þetta skiptir engu máli á meðan við vinnum leiki og þar sem við unnum leikinn þá er þetta ekkert til þess að vera að hafa áhyggjur af,“ sagði Klopp léttur í samtali við blaðamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert