Bournemouth lagði Brighton 3:1 í miklum fallslag á suðurströndinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og lyfti sér upp í 18. sætið með 23 stig.
Brighton er í 15. sætinu með 25 stig og fallbaráttan harðnaði til muna með úrslitum kvöldsins.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.