United staðfestir samning Ighalo

Odion Ighalo verður áfram í herbúðum Manchester United.
Odion Ighalo verður áfram í herbúðum Manchester United. AFP

Enska knattspyrnufélagið Manchester United staðfesti núna rétt í þessu að Odion Ighalo, framherji Shanghai Shenhua og lánsmaður hjá félaginu, yrði áfram í herbúðum liðsins. Ighalo skrifaði undir framlengingu á lánssamningi sínum við United sem rennur út í janúar 2021 en enskir fjölmiðlar greindu frá þessu í morgun.

Ighalo, sem verður 31 árs gamall í júní, gekk til liðs við United á láni í janúar á þessu ári og hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum fyrir félagið í öllum keppnum. Honum var ætlað að fylla skarð Marcus Rashford sem meiddist í janúar en Rasford mun ná lokaleikjum ensku úrvalsdeildarinnar sem fer aftur af stað 17. júní eftir rúmlega þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirufaraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert