Ramsdale vann þennan leik fyrir okkur

Mikel Arteta.
Mikel Arteta. AFP/Justin Tallis

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal var ánægður með stigin þrjú eftir 2:0-sigur á Crystal Palace í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi.

„Ég er virkilega ánægður með sigurinn og að halda hreinu gegn virkilega erfiðum andstæðingi á erfiðum útivelli. Við gerðum ráð fyrir því að þetta yrði erfiður leikur en við sýndum mikinn karakter með því að klára hann.“

„Ef við töpum baráttunni í svona leik verðum við opnir. Varnarmennirnir okkar voru virkilega mikilvægir í kvöld og þessi þrautsegja er það sem við þurfum til að vinna leiki. Aaron Ramsdale varði svo frábærlega líka og vann þennan leik fyrir okkur.“

Mikið hefur verið rætt og ritað um komandi tímabil hjá Arsenal en stuðningsmenn liðsins eru mjög spenntir. Liðið hefur bætt við sig nýjum leikmönnum en tveir þeirra, Oleksandr Zinchenko og Gabriel Jesus voru báðir í byrjunarliðinu í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert