Sebastian Vettel á Ferrari ók manna mest á fyrsta degi þróunaraksturs formúluliðanna fyrir komandi keppnistíð. Í öðru sæti og 0,397 sekúndum lengur með hringinn varð Carlos Sainz á McLaren og þriðji Romain Grosjean á Haas.
Vettel ók alls 169 hringi yfir daginn, eða sem svara til tvöfaldrar keppnislengdar. Sainz fór 119 og Grosjean 65. Næstlengst ók Max Verstappen á Red Bull eða 128 hringi og Kimi Räikkönen lagði 114 að baki. Aðrir voru innan við hundraðið, en alls tóku 11 ökumenn þátt í dag.
Grosjean var sekúndu lengur í förum en Vettel, Verstappen 1,2 sekúndum og Räikkönen 1,3 sek. Aðrir ökumenn á æfingunni voru Daniil Kvyat á Toro Rosso, Sergio Perez á Racing Point, Valtteri Bottas og Lewis Hamilton á Mercedes og Nico Hülkenberg og Daniel Ricciardo á Renault.
Bottas og Hamilton óku samtals 150 hringi en voru hvor um sig rétt tæpum tveimur sekúndum lengur með sinn besta hring en Vettel. Á þeim liðsfélögunum munaði aðeins 0,008 sekúndum þegar upp var staðið, eða átta þúsundustu úr sekúndu.
Lewis Hamilton á ferð í Barcelona í dag, fyrsta degi vetraræfinga formúluliðanna.
AFP
Ljós og skuggar í Barcelona í dag. Á ferð er Kimi Räikkönen á Alfa Romeo.
AFP
Sebastian Vettel á leið til besta brautartíma í Barcelona í dag, fyrsta degi vetraræfinga formúluliðanna.
AFP
Kimi Räikkönen á ferð á Alfa Romeo í Barcelona í dag.
AFP
Carlos Sainz á McLaren í Barcelona í dag.
AFP
Lewis Hamilton í Barcelona í dag.
AFP
Daniel Ricciardo á Renault í Barcelona í dag.
AFP
Sergio Perez á bíl Racing Point í Barcelona í dag.
AFP
Sebastian Vettel hafði best úthald og fór hraðast í Barcelona í dag.
AFP
Romain Grosjean stekkur úr bíl sínum vegna bilunar á æfingunni í Barcelona í dag.
AFP
Valtteri Bottas við þróunaraksturinn í Barcelona í dag.
AFP
Kimi Räikkönen (t.v.) og liðsfélagi hans Antonio Giovinazzi sviptu keppnisbíl Alfa Romeo hulum í Barcelona í dag.
AFP
Kimi Räikkönen (t.v.) og Antonio Giovinazzi keppa fyrir Alfa Romeo í ár.
AFP
Kevin Magnussen hinn danski hjá Haas.
AFP
Romain Grosjean hjá Haas.
AFP
Romain Grosjean (t.v.) og Kevin Magnussen aka fyrir Haas í ár. Þeir sviptu bíl sinn hulunni í Barcelona í dag.
AFP
Max Verstappen á æfingunni í dag. Svo sem sjá má er bíll hans aftur kominn í sitt gamla útlit, eftir „einsdagsútlitið“ sem Red Bull sýndi í síðustu viku.
AFP