Charles Leclerc ók hraðast á lokaæfingunni fyrir tímatökuna en hann á heima í furstadæminu og ekkir því vel til aðstæðna þar.
Var Leclerc 53 þúsundustu úr sekúndu á undan Valttery Bottas hjá Mercedes. Lewis Hamilton á Mercedes var 0,213 sekúndum lengur í förum á hringnum en Leclerc.
Óvíst er að Leclerc haldi toppsætinu því verið er að rannsaka hvort hann hafi ekið of hratt er sýndaröryggisbíll var sendur út í brautina er liðsfélagi Leclerc, Seabastian Vettel, klessti á vegg.