Samningi eistneski aksturskappans Juri Vips, vara- og æfingaökumanns hjá Red Bull í Formúlu 1, hefur verið rift eftir að hann gerðist uppvís að kynþáttafordómum og fordómum í garð samkynhneigðra.
Hinn 21 árs gamli Vips var að streyma tölvuleik ásamt liðsfélaga sínum Liam Lawson þegar hann lét óviðeigandi orð falla á mismunandi tímapunktum í streyminu, sem þóttu til marks um kynþáttafordóma og fordóma í garð samkynhneigðra.
Red Bull setti hann tafarlaust í bann á meðan liðið rannsakaði atvikið og hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að rifta samningi Vips eftir að rannsókn lauk.
„Í kjölfar rannsóknar á atviki á netinu sem tengdist Juri Vips hefur Oracle Red Bull Racing ákveðið að rifta samningi Juris sem vara- og æfingaökumanns. Liðið samþykkir ekki nokkra tegund kynþáttaníðs,“ sagði í yfirlýsingu frá Red Bull.
Rannsóknin hefur þótt formsatriði þar sem mynd- og hljóðupptaka var til af Vips að láta orðin falla og baðst hann auk þess afsökunar í síðustu viku þegar Red Bull setti hann í bann.
„Svona orðanotkun er fullkomlega óásættanleg og endurspeglar ekki þau gildi sem ég stend fyrir.
Ég sé sárlega eftir gjörðum mínum og þetta er ekki það fordæmi sem ég vil setja. Ég mun veita fulla samvinnu í rannsókninni,“ skrifaði Vips á instagramaðgangi sínum.