Japaninn framlengir til 2023

Yuki Tsunoda.
Yuki Tsunoda. Ljósmynd/Formúla 1

Japaninn Yuki Tsunoda hefur skrifað undir nýjan samning við Alpha Tauri og mun því vera annar ökumaður liðsins út næsta tímabil hið minnsta.

Tsunoda, sem er 22 ára gamall, er á sínu öðru tímabili í Formúlu 1 og hefur staðið sig nokkuð vel. Hann hefur ekið við hlið Frakkans Pierre Gasly en saman hafa þeir náð fínum árangri með Alpha Tauri-liðinu.

„Yuki er mjög hæfileikaríkur ökumaður sem hefur tekið miklum framförum á tímabilinu. Hraðinn sem hann hefur sýnt undanfarið er skýrt merki um framfarir og því verðskuldar hann áframhaldandi sæti í Formúlu 1,“ sagði liðsstjóri Alpha Tauri, Franz Tost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert