Theodór Elmar Bjarnason og liðsfélagar hans í Elazigspor unnu góðan 2:1-heimasigur á Giresunspor á heimavelli sínum í tyrknesku B-deildinni í fótbolta í dag. Theodór spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Elazigspor.
Eftir sigurinn er liðið aðeins tveimur stigum frá 6. sætinu, en það gefur þátttökurétt í umspilinu um sæti í efstu deild á næsta tímabili. Eftir skelfilegt gengi undir lok síðasta árs hafa Elmar og félagar rétt úr kútnum og ekki tapað síðustu fimm leikjum sínum og af þeim unnið þrjá.