Nýkrýndir Hollandsmeistarar PSV gerðu 2:2-jafntefli gegn Roda í efstu deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Heimamenn í Roda komust yfir í tvígang og var staðan 2:1-þeim í vil á 66. mínútu þegar Albert Guðmundsson kom inn á en hann hefur lítið spilað með aðalliðinu í vetur.
Það var svo Jorrit Hendrix sem tryggði PSV stigið undir lok leiks en meistararnir eru með 81 stig á toppi deildarinnar, 11 stigum á undan Ajax í öðru sæti.