Það er ekkert lát á sigurgöngu lærisveina Heimis Guðjónssonar í færeyska knattspyrnuliðinu HB.
HB hafði betur gegn EB Streymur í gær 1:0. Þetta var áttundi sigurleikur HB í röð í deildinni og er liðið með þriggja stiga forskot á B36 á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir. HB hefur unnið 9 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum en HB tapaði fyrir KÍ í fyrstu umferðinni.
Brynjar Hlöðversson lék allan tímann fyrir HB og bar fyrirliðabandið en hann gekk í raðir Þórshafnarliðsins frá Leikni Reykjavík fyrir tímabilið.