Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson var valinn í lið umferðarinnar í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu af blaðinu L´Eqiupe en Rúnar átti góðan leik í 2:1 sigri Dijon á Montpellier.
Þetta var fyrsti leikur Rúnars fyrir Dijon í frönsku úrvalsdeildinni en hann kom til félagsins fyrir tímabilið frá Njordsjælland. Rúnar er fyrsti íslenski markvörðurinn til þess að spila í einni af fimm stærstu deildum Evrópu.
Rúnar Alex Rúnarsson (1995) in The Team of the Round by l’Equipe, Impressive. Had some very important saves in the game & secured 3 points 🇮🇸👏 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/ReG1DS7shy
— Total Football (@totalfl) August 13, 2018