Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar hjá Rosengård gerðu sér lítið fyrir og unnu 10:0-heimasigur á Kalmar í efstu deild Svíþjóðar í fótbolta í dag. Glódís skoraði annað mark liðsins með skalla af stuttu færi. Rosengård er í öðru sæti deildarinnar með 29 stig, stigi minna en topplið Piteå, sem á leik til góða.
Sif Atladóttir var ekki með Kristianstad sem vann 1:0-sigur á Växjö. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfarar Kristianstad sem er í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig. Hér að neðan má sjá mörk Rosengård í dag, en mark Glódísar kemur eftir um 15 sekúndur.