Enginn Messi í fyrsta skipti í 12 ár

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Í fyrsta skipti í 12 ár er Argentínumaðurinn Lionel Messi ekki tilnefndur í kjöri á besta knattspyrnumanni heims hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu.

Undanfarin 11 ár hefur Messi verið tilnefndur og fimm sinnum hefur hann verið valinn sá besti, 2009, 2010, 2011, 2012 og 2015.

Cristiano Ronaldo, Mohamed Salah og Luka Modric eru tilnefndir að þessu sinni en Ronaldo hefur eins og Messi hlotið þennan titil fimm sinnum, 2008, 2013, 2014, 2016 og 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert