María skoraði í Meistaradeildinni

María Þórisdóttir á EM 2017 með norska landsliðinu.
María Þórisdóttir á EM 2017 með norska landsliðinu. mbl.is/Sindri Sverrisson

María Þórisdóttir skoraði fyrir ensku meistarana Chelsea í dag þegar liðið vann þægilegan útisigur gegn Sarajevo í Bosníu, 5:0, í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu.

María, sem er landsliðskona Noregs og dóttir Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handknattleik, skoraði þriðja mark Chelsea í leiknum í dag á 36. mínútu en hún spilaði allan leikinn í vörn Lundúnaliðsins sem á næsta  víst sæti í sextán liða úrslitum keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert