Ronaldo verður með á Old Trafford

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Cristiano Ronaldo, leikmaður Ítalíumeistara Juventus, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum á móti Valencia í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Þetta þýðir að Ronaldo getur mætt fyrrum samherjum sínum í Manchester United á Old Trafford þann 23. október en hann tekur út bannið í leiknum gegn Young Boys þegar Juventus tekur á móti svissnesku meisturunum í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert