Alfreð heldur áfram að raða inn mörkum

Alfreð Finnbogason er búinn að vera sjóðheitur.
Alfreð Finnbogason er búinn að vera sjóðheitur. AFP

Alfreð Finnbogason hélt áfram góðu gengi sínu fyrir framan mark andstæðinganna er hann skoraði fyrra mark Augsburg í 2:2-jafntefli við Nürnberg á heimavelli í þýsku A-deildinni í fótbolta í dag. Alfreð lék allan leikinn og kom markið hans á elleftu mínútu. 

Alfreð er búinn að skora sex mörk í aðeins fimm leikjum síðan hann jafnaði sig á meiðslum í lok september og er hann aðeins búinn að skora tveimur minna en markahæstu leikmenn deildarinnar, þrátt fyrir fjarveru í byrjun tímabils. 

Augsburg er í níunda sæti deildarinnar með 13 stig. Dortmund er í toppsætinu með 24 stig eftir 1:0-útisigur á Wolfsburg. Bayern München er þar fjórum stigum á eftir. Bayern gerði 1:1-jafntefli við Freiburg á heimavelli í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert