Victor Lindelöf, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, hefur verið valinn leikmaður ársins í Svíþjóð. Andreas Granqvist, liðsfélagi hans í sænska landsliðinu, hlaut viðurkenninguna í fyrra.
Lindelöf spilaði mjög vel með Svíum á HM í Rússlandi þar sem liðið fór alla leið í átta liða úrslit keppninnar. Þar féllu Svíar úr leik eftir 2:0-tap gegn Englandi í Samara. Framherjinn Zlatan Ibrahimovic hefur unnið verlaunin oftast eða alls tíu sinnum.