Alfreð Finnbogason og samherjar hans hjá Augsburg náðu í fínt jafntefli á útivelli gegn Hertha Berlín í efstu deild Þýskalands í fótbolta í kvöld, 2:2.
Framherjinn var í byrjunarliði Augsburg og spilaði rúmlega klukkutíma áður en hann var tekinn af velli. Alfreð lagði upp annað mark Augsburg er Ja-Cheol Koo jafnaði í 2:2 á 39. mínútu.
Augsburg er í 13. sæti deildarinnar með 15 stig og Hertha er í sjöunda sæti með 24 stig.