Eins og mbl.is sagði frá í gær var Kristófer Ingi Kristinsson hetja Willem II þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Twente og tryggði liðinu sæti í undanúrslitum hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Kristófer skoraði sigurmarkið með laglegum skalla á 86. mínútu, tólf mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Markið má sjá hér að neðan.
Kristófer Ingi, sem er 19 ára gamall, hefur komið við sögu í níu leikjum Willem II í deildinni og hefur í þeim skorað eitt mark. Kristófer lék með Stjörnunni áður en hann fór til Hollands árið 2016. Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, samtals 32 leiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.
⚽️ | Is dit de beslissing in de wedstrijd? Willem II-speler Kristófer Kristinsson kopt de 2-3 binnen voor de Tilburgers met nog vijf minuten op de klok.#twewil #TOTOKNVBBekerhttps://t.co/hvQ8sjavj8 pic.twitter.com/tk7nazhnnQ
— FOX Sports (@FOXSportsnl) January 23, 2019