Ospina útskrifaður af sjúkrahúsi

David Ospina
David Ospina AFP

David Ospina, markvörður Napólí, var í gærkvöldi útskrifaður af sjúkrahúsi en hann fór af velli í deildarleik gegn Udinese á sunnudaginn vegna höfuðáverka. 

Ospina fékk höfuðhögg snemma leiks en var þó ekki tekinn af velli. Síðar í fyrri hálfleik hneig hann niður og atvikið leit því illa út. 

Afleiðingar af högginu virðast nú ekki vera alvarlegar til lengri tíma litið en ekki liggur fyrir hvenær Ospina verður leikfær á ný. 

David Ospina liggur á vellinum í leiknum á sunnudag.
David Ospina liggur á vellinum í leiknum á sunnudag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert