Real Madríd fór vel af stað og vann 3:1-útisigur á Celta Vigo í fyrstu umferð spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu í dag.
Það var enginn annar en Walesverjinn Gareth Bale sem var í byrjunarliðinu og lagði upp fyrsta markið á Karim Benzema á 12. mínútu en mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð kappans í sumar. Bale var nálægt því að ganga til liðs við kínverska úrvalsdeildarfélagið Jiangsu Suning í júlí en Real Madrid stoppaði félagaskiptin á síðustu stundu.
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric fékk svo að líta beint rautt spjald snemma í síðari hálfleik en það kom ekki að sök. Toni Kroos og Lucas Vazquez bættu við mörkum áður en Iker Losada klóraði í bakkann fyrir heimamenn.
Real fer því betur af stað en fjendurnir í Barcelona sem töpuðu fyrsta leik, 1:0 á útivelli gegn Athletic.