Íslensku leikmenn Aalesund sem leikur í norsku B-deildinni í knattspyrnu voru allt í öllu í 3:2-útisigri liðsins á Sogndal í dag en fjórir Íslendingar leika með liðinu.
Þeir Davíð Kristján Ólafsson, Daníel Leó Grétarsson, Hólmbert Aron Friðjónsson og Aron Elís Þrándarson voru allir í byrjunarliði Aalesund í dag. Hólmbert og Aron kláruðu leikinn en Daníel var tekinn af velli á 69. mínútu og Davíð á þeirri 46.
Það voru heimamenn sem komust yfir á 8. mínútu en tvö íslensk mörk sneru taflinu við fyrir toppliðið. Daníel Leó jafnaði metin á 52. mínútu áður en Aron Elís kom Aalesund yfir á 71. mínútu og er liðið nú að stinga af í deildinni. Aalesund er með 47 stig eftir 18 umferðir, níu stigum fyrir ofan næsta lið, Sandefjord en með því leika Íslendingarnir Viðar Ari Jónsson og Emil Pálsson. Sandefjord missteig sig í leik sínum í dag, gerði 2:2 jafntefli gegn Skeid en Viðar Ari lék allan leikinn. Emil var ekki með.