Arnór Ingvi Traustason fór á kostum í sínum fyrsta deildarleik í um mánuð með sænska knattspyrnuliðinu Malmö. Arnór er nýstiginn upp úr meiðslum og hann minnti heldur betur á sig í dag.
Malmö vann afar sannfærandi 5:0-sigur á Falkenberg á heimavelli. Arnór lagði upp annað mark Malmö á 30. mínútu og sá hann sjálfur um að gera þriðja og fjórða markið með þriggja mínútna millibili snemma í seinni hálfleik.
Með sigrinum fór Malmö upp í toppsæti deildarinnar, þar sem Kolbeinn Sigþórsson og AIK misstigu sig fyrr í dag. Kolbeinn lék allan leikinn í óvæntu 1:2-tap fyrir Kalmar á heimavelli.
Þá lék Guðmundur Þórarinsson allan leikinn með Norrköping í 2:0-sigri á Sirius á útivelli.