Knattspyrnumaðurinn Oliver Sigurjónsson er um þessar mundir hjá enska C-deildarfélaginu Southend United en þar er Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsmaður, aðstoðarstjóri og Sol Campbell knattspyrnustjóri. Þetta kemur fram á fotbolti.net.
Oliver hefur verið í röðum Bodø/Glimt í Noregi síðustu ár en lítið fengið að spreyta sig með liðinu. Hann var í láni hjá uppeldisfélaginu Breiðabliki 2018 og í ár kom hann aðeins við sögu í tveimur leikjum í úrvalsdeildinni í Noregi en lék aðallega með varaliði félagsins í D-deildinni.
Campbell og Hermann tóku við liði Southend í ágúst en það hefur átt mjög erfitt uppdráttar og er næstneðst í C-deildinni með aðeins sex stig eftir tuttugu leiki.