Ronaldo í brasi með aðdáanda eftir leikinn

Öryggisverðir fjarlægja seinni aðdáandann og Cristiano Ronaldo sendir honum tóninn.
Öryggisverðir fjarlægja seinni aðdáandann og Cristiano Ronaldo sendir honum tóninn. AFP

Cristiano Ronaldo lenti í átökum við aðdáanda eftir leik Juventus gegn Bayer Leverkusen í Meistaradeildinni í fótbolta í Þýskalandi í gærkvöld.

Þegar leikurinn hafði verið flautaður af hljóp áhorfandi í búningi Juventus inn á völlinn og faðmaði Ronaldo. Þegar annar slíkur kom í kjölfarið, tók utan um hálsinn á Ronaldo og reyndi að taka sjálfu á símann sinn brást hann illa við, hristi aðdáandann af sér og hélt síðan um hálsinn. Öryggisverðir voru þá mættir til að fjarlægja manninn.

Ronaldo skoraði fyrra mark Juventus í 2:0 sigri en lið hans hafði fyrir leikinn þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Sá fyrri sem hljóp inn á völlinn faðmaði Ronaldo að …
Sá fyrri sem hljóp inn á völlinn faðmaði Ronaldo að sér. AFP
Cristiano Ronaldo hélt um hálsinn eftir viðskiptin við seinni aðdáandann …
Cristiano Ronaldo hélt um hálsinn eftir viðskiptin við seinni aðdáandann í Leverkusen. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert