Franski knattspyrnumaðurinn Karim Benzema var vægast sagt hreinskilinn þegar hann var beðinn að bera saman sig og landa sinn Olivier Giroud. Benzema hefur ekki miklar mætur á Giroud.
Benzema var beðinn að bera sig saman við Giroud á Instagram, en Benzema hafði lítinn áhuga á því og svaraði: „Þú berð ekki saman Formúlu 1 og gokart.“
Giroud hefur verið aðalframherji franska landsliðsins eftir að Benzema missti sætið sitt í liðinu árið 2015 vegna vandræða utanvallar. Benzema var spurður út í ummælin í kjölfarið og hélt hann sínu striki.
„Ég var einfaldlega að segja sannleikann um Giroud. Ég sagði það sem mér fannst,“ svaraði Benzema.