Willum Þór Willumsson og samherjar hans í BATE Borisov þurftu að sætta sig við 0:1-tap á útivelli gegn Slavia Mozyr í fyrri leik liðanna í undanúrslitum hvítrússneska bikarsins í fótbolta í dag.
Willum var í byrjunarliði BATE og lék allan leikinn en hann gat ekki komið í veg fyrir tap þar sem Yuri Pantya skoraði sigurmarkið á 11. mínútu.
BATE hefur farið illa af stað á leiktíðinni og tapað tveimur af þremur deildarleikjum sínum, en liðið tapaði einnig fyrir Slavia Mozyr í deildinni í lok síðasta mánaðar.
Hvítrússneski fótboltinn er sá eini í Evrópu sem er enn í gangi og það með áhorfendum.