Missir af fyrstu leikjunum

Gonzalo Higuaín.
Gonzalo Higuaín. AFP

Gonzalo Higuaín verður að öllum líkindum ekki með ítölsku meisturunum í Juventus þegar deildin þar í landi hefst aftur 20. júní vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu í dag.

Ítalska knattspyrnan hefst þá eftir eftir þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirunnar en liðin eru nýlega byrjuð að æfa og hafa tvö stærstu félögin strax orðið fyrir áföllum. Svíinn Zlatan Ibrahimovic meiddist á æfingu hjá AC Milan í síðustu viku og verðu frá í einhvern tíma og nú segir Sky á Ítalíu frá því að meistararnir verða án Higuaín í nokkrar vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert