Bayern München og Barcelona leika til fjórðungsúrslita í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir örugga sigra í einvígum sínum í 16-liða úrslitunum í kvöld. Bayern vann 4:1-heimasigur á Chelsea, einvígið samtals 7:1, og Barcelona vann 3:1-sigur á Napoli í Katalóníu, einvígið samtals 4:1.
Bæjarar voru í þægilegri stöðu fyrir leik kvöldsins en þeir unnu Chelsea 3:0 í þeirra eigin bakgarði, á Stamford Bridge í Lundúnum, í mars. Ekkert hefur verið leikið í Meistaradeildinni í fimm mánuði vegna kórónuveirunnar.
Robert Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir Bayern í kvöld og þeir Ivan Perisic og Corentin Tolisso eitt hvor. Mark Chelsea skoraði Tammy Abraham en lærisveinar Franks Lampards voru aldrei nálægt því að snúa taflinu við í kvöld.
Þá er Barcelona áfram eftir nokkuð öruggan sigur gegn Napoli en liðin skildu jöfn, 1:1, á Ítalíu í fyrri leik liðanna í vetur. Börsungar voru þó sterkari í kvöld og náðu þriggja marka forystu í fyrri hálfleik. Clément Lenglet og Lionel Messi skoruðu fyrstu tvö mörkin og Luis Suárez bætti svo við þriðja markinu úr vítaspyrnu. Lorenzo Insigne klóraði í bakkann fyrir gestina úr vítaspyrnu en nær komust þeir ekki.
Nú færist keppnin öll til Lissabon, höfuðborgar Portúgals, og fyrirkomulaginu breytt í hraðmót sem minnir á stórmót landsliða. Verður annars vegar leikið á José Alvalade-vellinum, heimavelli Sporting, og hins vegar Da Luz-vellinum, heimavelli Benfica. Mætast lið aðeins einu sinni í átta liða úrslitum og undanúrslitum í stað þess að leika tvo leiki.
Bayern og Barcelona mætast einmitt í fjórðungsúrslitunum, í Lissabon 14. ágúst.
Manchester City mætir einmitt Lyon í fjórðungsúrslitum í Lissabon 15. ágúst. Átta liða úrslitin verða spiluð frá 12.-15. ágúst, einn leikur á dag, og sömu sögu er að segja um undanúrslitin 18.-19. ágúst. Þá fer úrslitaleikurinn fram 23. ágúst á heimavelli Benfica.
Fjórðungsúrslitin
Manchester City - Lyon
RB Leipzig - Atlético Madríd
Barcelona - Bayern München
Atalanta - PSG