Lionel Messi missir af öðrum leik París SG í röð í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu á morgun en þá leikur liðið gegn Montpellier.
Messi fékk högg á hné í leik PSG gegn Lyon um síðustu helgi og þurfti að fara af velli, og gat í kjölfarið ekki leikið með liðinu þegar það vann Metz 2:1 á miðvikudaginn.
Franska félagið skýrði frá því að staðan á Messi yrði skoðuð á ný á sunnudaginn og þá kæmi í ljós hvort hann gæti spilað stórleikinn gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn kemur.