París SG er enn með fullt hús stiga eftir átta leiki í frönsku 1. deildinni í fótbolta eftir 2:0-sigur á Montpellier á heimavelli í kvöld.
PSG lék án Lionel Messi, sem er meiddur, en í fjarveru hans skoruðu miðjumennirnir Idrissa Gueye og Julian Draxler mörk Parísarliðsins.
Þrátt fyrir að stutt sé liðið af tímabilinu er PSG með tíu stiga forskot á Marseille í öðru sæti.