Knattspyrnumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni um helgina gegn Nordsjælland á útivelli.
Leiknum lauk með 5:1-sigri Köbenhavn en Ísak kom inn á sem varamaður á 77. mínútu og skoraði fimmta mark Köbenhavn þremur mínútum síðar.
Ísak gekk til liðs við Köbenhavn frá Norrköping í Svíþjóð í síðasta mánuði og hefur farið vel af stað með sínu nýja félagi.