Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona, er byrjaður að hreinsa til í leikmannahópi sínum og hefur nú tilkynnt fjórum leikmönnum að þeir þurfi ekki að láta sjá sig á æfingum eftir sumarfríið.
Þetta eru franski varnarmaðurinn Samuel Umtiti, danski sóknarmaðurinn Martin Braithwate, spænski varnarmaðurinn Óscar Mingueza og spænski miðjumaðurinn Riqui Puig.
Xavi þarf að skera niður af fjárhagsástæðum en skuldastaða félagsins er afar svört þrátt fyrir að 176 milljónir punda hafi komið í kassann á dögunum þegar Barcelona seldi 10 prósnet af sjónvarpsrétti sínum.