Sænska Íslendingaliðið Kristianstad er úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 1:3-tap fyrir Ajax frá Hollandi í dag en leikið var í Hjørring í Danmörku.
Evelyne Viens kom Kristianstad yfir á 19. mínútu en Ajax svaraði með mörkum frá Victoriu Pelovu, Eshly Bakker og Chasity Grant í seinni hálfleik.
Amanda Andradóttir kom inn sem varamaður á 73. mínútu hjá Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Emilía Óskarsdóttir var allan tímann á varamannabekknum.