Knattspyrnuþjálfarinn Þórhallur Siggeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari indverska úrvalsdeildarfélagsins East Bengal í borginni Kolkata.
Þórhallur, sem er 35 ára gamall, þjálfaði karlalið Þróttar úr Reykjavík árið 2019 og hefur komið víða við í unglingaþjálfun á Íslandi, m.a. hjá HK, Stjörnunni og Val, og hefur starfað undanfarna sex mánuði hjá Sarpsborg í Noregi.
Keppnistímabilið á Indlandi hefst 21. október en East Bengal endaði í neðsta sæti af ellefu liðum á síðasta tímabili.
Þórhallur er annar Íslendingurinn sem kemur að þjálfun í þessari deild en Hermann Hreiðarsson var um skeið aðstoðarþjálfari Kerala Blasters.